fire inside the cold front

hætt við fermingu

Jæja það sleppa sumir við að kaupa eina fermingargjöfina í ár.

Vil bara tilkynna að við komumst því miður ekki í að ferma Daníel, vorum búin að panta ferminguna sjálfa 16 mars sl. En við erum svo peningalaus eftir flutninga og atvinnuleysi hjá bæði mér og Dave, plús það að við erum að kaupa hús. Svo var ekki hlaupið að því að fá frí úr vinnu sem við erum nýbyrjuð í og ekki auðvelt að plana fermingu frá öðru landi, flugfar ofl afsakanir. Ég vona að ég eigi ekki eftir að sjá mikið á eftir þessu. Hefði svo gjarnar viljað getað veitt honum þennan dag þar sem hann er aðalnúmerið, ég er líka svo stolt af honum. En þó að Daníel telur sig vera kristinn þá var hann alfarið á móti því að láta ferma sig alveg frá byrjun, svo það friðar samvisku mína aðeins. Daniel 

Ég horfði í augun á honum í ágúst þegar við fluttum út, núna horfi ég upp til hans um 20 cm. Hann hefur stækkað svo mikið síðan þá. Hann er orðinn svo fullorðinslegur þessi elska og byrjaður í unglingafrösunum sem maður kannast svo við. Skrýtið að vera í hinum endanum allt í einu, svo stutt síðan maður var unglingur sjálfur. Svo finnst mér ég vera svöl mamma, en það er greinilega misskilingur hjá mér :)  

March 17th, 2008 at 5:53 pm | Comments & Trackbacks (57) | Permalink